Vangaveltur um kirkju og kristni býður upp á námskeið um framtíðarsýn í safnaðarstarfi. Á námskeiðinu er fjallað um markmið og tilgang kirkjustarfs í fortíð, nútíð og framtíð ásamt breytingastjórnun í safnaðarstarfi. Námskeiðið er ætlað leiðtogum í kirkjustarfi, jafnt sóknarnefndarfólki, prestum og djáknum. Um er að ræða heilsdagsnámskeið og er hámarksfjöldi þátttakenda 20. — Nánar um [...]

Vangaveltur um kirkju og kristni er með til athugunar að skipuleggja í samstarfi við fleiri hópferð fyrir ungt fólk á aldrinum 15-18 ára á æskulýðsmót Lúthersku kirkjunnar í Bandaríkjunum sumarið 2012. Mótið ber yfirskriftina “Að eiga heima með heilögum” og verður haldið dagana 18.-22. júlí 2012 í New Orleans. Á síðasta mót sem haldið var [...]

Vangaveltur um kirkju og kristni býður upp á námskeið, samveru og samtal um trúleysishreyfingar á Íslandi. Meginverkefni samverunnar er að leita svara við spurningum um hvort þjóðkirkjan geti og/eða eigi að leitast við að eiga í samtali við slíkar hreyfingar og ef svarið er játandi á hvaða hátt slíkt sé mögulegt.

Samfylgd eða þjónusta er gagnrýnið námskeið sem spyr spurninga um áherslur í kirkjulegu starfi, sér í lagi kærleiksþjónustu og æskulýðsstarfi. Á námskeiðinu verður rætt um muninn á samfylgd (e. accompaniment) annars vegar og þjónustu hins vegar. Um er að ræða heilsdagsnámskeið. Samfylgd í kirkjustarfi leggur áherslu á að allt starf kirkjunnar er tvíátta, hugmyndir um að [...]